January 14th, 2010
Actually a long time ago, since Facebook started it’s invation this page has been on hold. But I’ve recently found a theme that I will implement here and change the main purpose of the site. I will continue to post news but very likely in short twitter like posts.
Things that have been going on . . .
I’ve had a few photoshoots that came out nicely
My kids keep growing up
I am studying for EMT-Intermediate until April-May
Will likely participate in the Icelandic Fire Departments’ Soccer tournament
Will hopefully have more time to take photos and complete the new version of this site
More pictures from Greenland will come here when the new layout is complete
Posted in Uncategorized | No Comments »
November 2nd, 2009
I know I did not post it here when I came back home to Iceland but for some reason I’ve been lazy updating this site (cough, Facebook, cough). So recently I have been thinking more about setting this site up more focused on photography and pictures for sale. So if you are a skilled webdesigner willing to assist me it would be appreciated.
But back to the headline, I am back to Nalunaq Greenland and hopefully I will be more efficient on taking pictures here now than last time. Today the weather is good and snow all over. I still haven’t been up in the mine but I hope to go there today. Things seem to go just fine, no major accidents and most staff very safety minded. There have been some changes in staff but I still know over half of them. More later. . .
Posted in Uncategorized | No Comments »
August 28th, 2009
Deciding once again to try writing in English for now. Well I’ve sought out an adventure. I am located now in the fjord by Nanulaq where the Nanulaq Gold Mine is. Here I am managing the Emergency Room and other health and safety issues that personnel here might experience. Of course I brought my camera with me and here are a few pictures for you to look at.
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
July 7th, 2009
Ég gat ekki orða bundist þegar ég las fréttablaðið í morgun. Björgólfsfeðgar voru að bjóða sínum skuldunautum að þeir borgi 50% af sínum skuldum (persónulegu ábyrgðum) og þar af 1/6 af þeim í ár. Restina fá þeir niðurfellda!!!
Ég veit ekki hvort að ég myndi ráða við að borga niður 1/6 af öllum mínum skuldum á þessu ári, en myndi reyna hvað ég gæti að vinna eins og brjálæðingur til að láta slíkt ganga upp. En ef húsnæðisskuldin yrði undanskilin gæti þetta mögulega gengið, það er ef ég fengi 50% niðurfellt á móti. Hvar sæki ég um slíka viðskiptahætti?
Persónulega finnst mér þetta vera alls ekki gott fyrir okkur almenning að horfa uppá, að auðkýfingar eigi kost á að fá niðurfellingu á RISAstórum skuldum sínum á meðan ég með mín lán skal standa í skilum! Og það með bullandi verðbótum (þökk sé verðbólgunni og verðtryggingunni).
Posted in Uncategorized | No Comments »
May 18th, 2009
Skal koma með aðeins betri fréttir næstu daga. En ég ákvað að pósta hér aðeins stuttri tilkynningu þar sem að ég þurfti að bæta við síðu hjá mér vegna greinar í erlendu blaði þar sem vísað er á síðuna mína.
Posted in Uncategorized | No Comments »
December 26th, 2008
Ég vildi bara nota tækifærið og óska öllum gleðilegra jóla um leið og ég þakka öllum fyrir jólakveðjurnar, gjafirnar og kortin.
Jólin hjá okkur hafa verið alveg ótrúlega fín, yndislegur matur alla dagana og aðfangadagur var þægilega rólegur með tengdó í heimsókn. Mér þótti gaman að sjá hvað hún varð spennt yfir pökkunum. Kristján Sindri og Júlía Auðbjörg voru dugleg að hlaupa undir tréð og velja pakka til að opna.
Jóladagur var að venju hjá pabba en fjölskyldan var með bíóstund í náttfötum og undir teppum í sófanum fyrripart dagsins. Didda og dauði kötturinn varð fyrir valinu sem fyrri mynd enda jólagjöf til fjölskyldunnar í ár. Seinni myndin var Fantastic Four, seinni myndin.
Maturinn hjá pabba alveg frábær að venju, ég er viss um það að hann gæti unnið sem myndarkokkur ef hann gefst upp á málningarvinnunni.
Posted in Uncategorized | No Comments »
December 17th, 2008
Hvað kom fyrir? Jú, ég tel mig hafa séð ákveðin teikn á lofti í nokkurn tíma en aldrei bjóst ég við svona hörðum og skyndilegum skell. Var að vonast eftir 3-5 árum í víðbót af þessu blessaða “góðæri” sem ég fann líttilega fyrir en ekki jókst stærðin á buddunni minni. Heldur frekar á þann hátt að bankarnir opnuðu á lánamöguleika og gáfu í skyn að allt væri stöðugt og ég réði við hlutina. En annað kom svo á daginn. Erlend lán, verðtrygging lána, fasteignalánið mitt hefur bara hækkað, greiðslubyrði hækkað og önnur lán líka á meðan ég lækka í launum vildi óska stundum að launin mín væri verðtryggð eftir einhverri vísitölu. þá færi frekar svipað hlutfall tekna í lán og annað slíkt. En í dag . . . ég þori varla að stíga inní bankann minn, geri ráð fyrir því að þurfa að gráta í fjölskyldumeðlimum sem voru það góð við mig að skrifa uppá lán fyrir mig á sínum tíma. Nema núna þyrfti ég að breyta t.d. 10 ára láni sem ég á 3 ár eftir af uppí 10 ár aftur. Þar með fóru allir draumar um að skulda bara íbúðalánið fyrir fertugt.
Sjálfur er ég þannig gerður að ég vill allt fyrir aðra gera, til í að fórna ýmsu fyrir sjálfan mig svo að aðrir þurfi ekki að líða eins mikinn skort. En eins og staðan er í dag . . . þyrfti ég að vinna mikið mikið meira (og klippa því á tíma frá börnum og fjölskyldu) til að hafa bara fyrir mínum fjárskuldbindingum. Sjáum hvað tíminn leiðir í ljós.
Svo sá ég frétt í dag um starfsfólk Glitnis sem sagði í viðtali að þau hafi verið í óvissu með sín störf og starfsöryggi í 2 vikur. Mætt bjóða þeim vinnu á mínum vinnustað sem hefur verið í spennitreyju í rúm 5 ár þó að lítið vor hafi komið 2006? Ég ætti kannski ekki að vera mikið að væla á þessum erfiðu tímum, ég er nú með vinnu! Ennþá! Metnaður fyrir starfinu fer minnkandi, möguleikar á að hækka í tign, auka við mig menntun í starfi, verða betri á morgun en í dag. EÐA HVAÐ?
Posted in Uncategorized | No Comments »
December 17th, 2008
Og núna kem ég til með að reyna að sækja backupið af hinu
Posted in Uncategorized | No Comments »
December 17th, 2008
Welcome to WordPress. This is your first post. Edit or delete it, then start blogging!
Posted in Uncategorized | 1 Comment »